Virkni- og stuðningsúrræði KLS

Virkniúrræði Kærleikssamtakanna snýr að persónulegri nálgun, daglegri rútínu, mataræði, næringu, hvíld, svefn og líkamlegri hreyfingu, fjármálum, fíkni- og geðrænum vanda, að skoða hugsanir sínar, tilfinningar og hegðun, að skoða sig sem einstakling, aga sig, virkja á heilbrigðan hátt og miðað við getu hverju sinni, skoða stuðningsnet sitt og/eða byggja það upp, skoða umhverfi sitt og samskipti við aðra.

Á meðan farið er í gegnum þessa þætti þá er stuðningur til staðar frá Kærleikssamtökunum. Stuðningurinn fellst í því að aðstoða einstakling til að nálgast hindranir í lífi sínu og þá þætti sem hafa komið sér í ójafnvægi sem síðan hefur leitt af sér erfiðleika í lífinu. Einnig til að nálgast áföll og leyta sér í framhaldi meðferðar hjá 3ja aðila.

Að rjúfa hvers kyns félagslega einangrun eru áhrif virkniúrræðisins.

Stuðningurinn fellst í því að fara með einstaklingi í viðtöl, sækja um það sem þarf og halda utan um umsóknir eða annað sem hver þarf að gera. Þannig er einstaklingurinn ekki einn að sjá um sín mál heldur hefur stuðningsaðila til að fara með sér í gegnum ferlið sem þarf að eiga sér stað til að viðkomandi geti komið sjálfum sér og lífi sínu aftur í jafnvægi.

Bæði virkniúrræðið og stuðningurinn felur í sér þátttöku einstaklings eftir getu hverju sinni.
Það er misjafnt hvað við eigum auðvelt með að gera og hvað er okkur ofviða.

Stuðningurinn felst í því að aðstoða við það sem er erfitt að gera til að ná árangri þar. Finna út hvað hindrar hvert okkar - er það kvíði, þunglyndi, skilnings- eða agaleysi, meðvirkni, forðun, áfallastreita, ótti við höfnun og óvissu, einmannaleiki eða kannski sambland af þessu að hluta eða öllu leyti.

Kvíði er ein mesta hindrun fyrir því að ná ekki að gera það sem við þurfum að gera.

Kvíði byggir á ótta sem getur valdið því að einstaklingur er ófær um að gera vissa hluti, en getur á móti verið meðvirkur, t.d. af ótta við höfnun. Þannig nær einstaklingur ekki að gera greinarmun á styrkleikum og veikleikum sínum svo ójafnvægi skapast í hugsun, tilfinningum og hegðun.

Þarna er til staðar óvissuástand um sjálfa/-n sig, hugsanir sínar, tilfinningar sínar, hegðun sína og getu til að takast á við áföll sem hver hefur lent í og ekki unnið úr. Áföll í lífinu valda geðrænu ástandi sem margir festast í. Áfall getur verið löngu liðið hjá en einstaklingur er fastur í ástandinu sem það olli og er þá um að ræða áfallastreituröskun.

Kvíði getur leitt til þunglyndis og margs konar fælni og frestunar á að gera hluti sem gagnast okkur og eru okkur jafnvel lífsnauðsynlegir. Þannig hamla kvíði – ótti – meðvirkni – óvissa – þunglyndi og öll önnur geðræn áhrif – framför okkar og möguleika á að vera í jafnvægi, ná fótfestu og getu til að nota styrkleika okkar til fulls á öllum sviðum lífsins. Að auki getur slíkt geðrænt ástand valdið líkamlegum kvillum svo færni okkar skerðist enn frekar.

Til að virkniúrræðið og stuðningurinn nýtist þá þarf einstaklingur að vilja nálgast sig, vilja skoða sitt ójafnvægi og vera tilbúin að vinna með sjálfa/-n sig. Að vera tilbúin að vilja – er fyrsta skrefið.

Virkniúrræði og stuðningur Kærleikssamtakanna er góð byrjunarleið til að komast á þann stað að geta í framhaldi leitað sér meðferðar sem þörf er á. Að auki gefur það einstaklingi færi á að fara í gegnum þetta nálgunarferli með stuðningi og utanumhaldi – til að halda uppi sýn á því hvaða skref er raunhæft að taka hverju sinni. Þannig er hægt að koma í veg fyrir að einstaklngur fari of geyst í bataferli eða sé að spóla í sama farinu. Virkniúrræðið nýtist einnig samhliða öðrum úrræðum/meðferðum.

Þessi nálgun Kærleikssamtakanna felur það í sér að hver einstaklingur fer á sínum hraða til að nálgast sjálfa/-n sig. Málin eru rædd og tekið er mið af því hvað kemur upp hjá hverjum og unnið er út frá því.

Til að ná markmiði – þarf hver og einn að skilja og geta nálgast þær hindranir sem eru til staðar. Ef við erum ekki með neitt sem hindrar okkur til að ná markmiði – þá þurfum við ekki stuðning eða meðferð til að ná markmiðinu. Svo sama hvert markmið okkar er – þá er fyrsta skrefið að meta hvort við getum náð því sjálf eða hvort við þurfum aukna þekkingu, stuðning, endurhæfingu eða meðferð til þess.

Uppfært af stjórn 15.7.2023
Samþykkt af stjórn og trúnaðarmönnum 5.7.2022

♥     ♥     ♥

VILLT ÞÚ FREKAR STYRKJA STARF KÆRLEIMSSAMTAKANNA:

Ef þú villt styrkja starf og úrræði Kærleikssamtakanna þá er hægt að velja úr styrktarleiðum sem eru kynntar hér.
Fyrir fyrirspurnir er hægt að fylla út hafa samband eða senda tölvupóst á netfangið kls@kaerleikssamtokin.is.

♥     ♥     ♥

TILGANGUR FÉLAGSINS

Gæta hagsmuna og reka félagsstarf fyrir einstaklinga sem eru félagslega einangraðir, búa við fátækt, eru heimilislausir og eiga langtíma óreglu- og/eða áfallasögu, með áherslu á jaðarsetta og viðkvæma hópa í þjóðfélaginu.

♥     ♥     ♥