STYRKTARLEIÐIRNAR 7
Þó styrkir í formi fjárs hafi ávallt mikilvægan ávinning og nýtast afar vel í starfi félagasamtaka - þá viljum við bjóða upp á fleiri en eina leið til að hafa þetta fjölbreytt og einnig að mæta getu og áhuga fólks. Við erum jú ekki öll eins og sumir styrkja með vinnuframlagi sem sparar þá samtökunum útgjöld, einstaklingar og fyrirtæki hafa gefið vörur, aðrir styrkja með einni eða fleiri greiðslum eða föstum mánaðarlegum greiðslum, einhverjir taka þátt í söfnunarátaki, leggja fram muni til sölu, hluta af söluhagnaði eða ágóða af verkefni. Því reynum við að mæta sem flestum með þessum mismunandi styrktarleiðum. Allir styrkir og öll aðstoð eru vel metin.
♥ ♥ ♥
TILGANGUR FÉLAGSINS
Tilgangur og markmið félagsins er að gæta hagsmuna og reka félagsstarf fyrir einstaklinga sem eru félagslega einangraðir vegna fátæktar, heimilisleysis og áfalla, með áherslu á jaðarsetta og viðkvæma hópa í þjóðfélaginu.
♥ ♥ ♥