Siða- og verklagsrammi KLS

Siða- og verklagsramminn:
1.
Siða- og verklagsrammi þessi nær yfir allt starf KLS, sem og alla einstaklinga innan félagsins, þ.e. félagsmenn, trúnaðarmenn og stjórnarmenn, starfsfólk, sjálfboðaliða,  vinnsluaðila og samstarfsaðila.

Siða- og verklagsrammi þessi gildir í öllum verkefnum KLS. Þannig er hægt að ganga út frá því að ákveðnir þættir séu alltaf eins þó verkefnin séu ólík.
Aðaláhersla Kærleikssamtakanna er að fyrirbyggja og rjúfa félagslega einangrun með virkniúrræði og stuðningi, sem er ekki meðferðúrræði í sjálfu sér – þó svo að menntaðir einstaklingar (meðferðaraðilar) geti boðið upp á meðferð af ýmsu tagi fyrir félagsmenn.

Samskipti:
2. Starf KLS og samskipti eiga að byggja á kærleika, jákvæðum og uppbyggjandi mannlegum samskiptum og virðingu í garð hvors annars. Að nota heilbrigðra skynsemi, virða jafnrétti, sýna náungakærleika, miðla hvetjandi og gefandi þekkingu á mannlegum nótum.

3.  Að hver leggi sig fram við að sýna kærleika og jákvæðni til að geta gefið það besta af sér á fundum, viðburðum, í verkefnum og vinnustofum á vegum samtakanna.
Taka mið af okkur sjálfum hverju sinni, þ.e. líðan og ástandi, svo við séum ekki að ýta undir neikvæða eða truflandi framkomu (stundum er betra að þegja en að segja).
Að allir geti mætt vitandi að tekið er vel á móti þeim.
Leggja sig fram um að leiðbeina viðkvæmum einstaklingum af varkárni til að tryggja að stuðningur verði ekki að þrýstingi eða kröfum fyrir viðkomandi.
Skýrt þarf að koma fram í samskiptum við félagsmenn og aðra sem leita til samtakanna – að þeir taki sjálfir ákvarðanir í sínum málum.
Að virkniúrræðið er til þess fallið að virkja einstaklinga til þátttöku og framkvæmdar fyrir sjálfan sig fyrst og fremst.
Stuðningur og leiðbeiningar eiga að vera lausnarmiðaðar fyrir einstaklinginn – í þeirri stöðu sem viðkomandi er í hverju sinni og séu til þess að taka mið af – einstaklingur tekur lokaákvörðun um sjálfa/-n sig því hver þekkir sjálfa/-n sig best.

4. Taka á málum sem upp koma með þolinmæði, skilningi og þekkingu eftir bestu getu – að, ef okkur tekst ekki að halda í þessi gildi, að við leiðréttum okkur sjálf við fyrsta tækifæri og biðjumst afsökunar eða fyrirgefningar.
Ef við finnum að við ráðum ekki við samtal, við vitum ekki svör við spurningum (t.d. nýrra félagsmanna eða gesta), ef óvissa er um hvers konar virkni og/eða stuðning er rétt að veita einhverjum – ræða þá við trúnaðar-, stjórnarmenn eða verkefnastjóra KLS til að tengja viðkomandi við réttan aðila innan félagsins.
Þekkja sín mörk um hvað við erum tilbúin að taka á móti, hlusta á eða opna okkur fyrir.

Þagnarskylda – Trúnaður:
5. Þ
agnarskylda – öllum ber að virða trúnað og þagnarskyldu um það sem þeir heyra og sjá á félagsfundum eða í öðru starfi KLS. Ef tilkynna þarf um hvers kyns ofbeldi/áreiti, er það gert til trúnaðarmanna, stjórnarmanna eða sent á netfangið felagsstarf@kaerleikssamtokin.is. Þagnarskylda og trúnaður helst þó einstaklingur gangi úr félaginu eða láti af störfum.

Umsóknarblöð, auglýsingar, aðgerðir, áætlanir, stefnur og samningar:
6. Stjórnin og trúnaðarmenn sammælast um þennan siða- og verklagsramma, vefsíðuna, umsóknarblöð fyrir fundargerðir og félagsaðild, uppsetningu félagsstarfsins, auglýsingar, persónuverndar- og öryggisstefnu, samninga sem notaðir eru innan KLS, aðgerðaráætlun gegn hvers kyns ofbeldi/áreitni, verkefnaáætlanir og verkefnastjórnun.

Félagsmenn geta komið með tillögur, hugmyndir og beiðnir sem ná yfir allt starf félagsins.

7. Persónuverndar- og öryggisstefnu KLS er að finna á vefsíðunni og verður aðgengileg ásamt öðru verklagi á hverju félagsheimili, áfangaheimili eða öðrum starfsstöðum KLS. Umsóknir og samningar á vegum KLS falla undir vinnslu persónuupplýsinga og eru ráðstafanir þess efnis tilgreindar á umsóknar- og samningsblöðum.

8. Samningar KLS eru sjálfboðaliða-, vinnslu-, ráðningar-, þjónustu- og samstarfssamningar.

  • Sjálfboðaliðar eru félagsmenn sem taka að sér verkefni innan KLS.
  • Vinnsluaðilar eru einstaklingar og fyrirtæki sem meðhöndla persónuupplýsingar og felst samningurinn í skýru verklagi bæði ábyrgðar- og vinnsluaðila.
  • Ráðningarsamningar eru gerðir við einstaklinga sem vinna launað starf innan KLS.
  • Þjónustusamningar eru t.d. hýsingar á vefsíðu, bókhaldskerfis, tölvupóstakerfis, gagnagrunni, posaleigu, vegna safnana eða hvers kyns þjónustu sem KLS kaupir.
  • Samstarfssamningar eru gerðir við einstaklinga, fyrirtæki, félög, sjóði og sjálfseignarstofnanir sem vilja koma að félaginu með uppbyggjandi hætti og teljast ekki félagsaðilar.

9. Aðgerðaráætlun fjallar um hvernig tekið er á einelti, óbeinni stjórnun og hvers kyns ofbeldi/áreiti sem upp kann að koma innan félagsins. KLS leggur áherslu á jákvæð og mannleg samskipti og að allir innan félagsins muni eftir að einstaklingar eru mis vel upp lagðir, að margir hverjir geti verið að glíma við kvíða, óöryggi, verið meðvirkir og átt áfallasögu sem tengist ofbeldi og/eða áreiti.

  • Hver sá sem verður var við hvers kyns ofbeldi/áreiti, ber að tilkynna það til trúnaðar- eða stjórnarmanna, eða með því að senda tölvupóst á netfangið felagsstarf@kaerleikssamtokin.is. Eins ber einstaklingi sem verður fyrir ágengri framkomu, einelti eða ofbeldi, að gera slíkt hið sama.
  • Aðgerðaráætlun felur í sér ákveðið verklag trúnaðar- og stjórnarmanna, hvernig brugðist er við, hvað þarf að tryggja, ásamt eftirfylgni. Ef vísa þarf aðila frá félaginu sökum ósæmilegrar hegðunar eða kæru taka stjórn og trúnaðarmenn félagsins á því.

10. Stjórn KLS hefur yfirumsjón með verkefnum og ber ábyrgð á að áætlanir standist. Verkefnaáætlanir (kostnaðar-, tíma-, rekstraráætlun), verkefnastjórnun og ábyrgð á verkefnum er í höndum þeirra sem stýra verkefni. Stjórnin sinnir eftirliti og grípur til aðgerða ef upp koma aðstæður sem kalla á verulegar breytingar.
Þátttaka félagsmanna sem sjálfboðaliðar, launað starfsfólk eða samstarfsaðilar sem koma að verkefni eru samningsbundnir og bera ábyrgð á sínu starfi, mætingu, að halda samskiptum jákvæðum og að þeir taki að sé verkefni sem þeir ráða við.

Uppfært af stjórn 3.7.2023
Samþykkt af stjórn og trúnaðarmönnum 27.10.2022

♥     ♥     ♥

VILLT ÞÚ FREKAR STYRKJA STARF KÆRLEIMSSAMTAKANNA:

Ef þú villt styrkja starf og úrræði Kærleikssamtakanna þá er hægt að velja úr styrktarleiðum sem eru kynntar hér.
Fyrir fyrirspurnir er hægt að fylla út hafa samband eða senda tölvupóst á netfangið kls@kaerleikssamtokin.is.

♥     ♥     ♥

TILGANGUR FÉLAGSINS

Gæta hagsmuna og reka félagsstarf fyrir einstaklinga sem eru félagslega einangraðir, búa við fátækt, eru heimilislausir og eiga langtíma óreglu- og/eða áfallasögu, með áherslu á jaðarsetta og viðkvæma hópa í þjóðfélaginu.

♥     ♥     ♥