STYRTARLEIÐ 2 Bækurnar

STYRKTARLEIÐ 2

Allur ágóði af sölu bókanna rennur óskertur til Kærleikssamtakanna.

Bækur þessar tengjast Kærleikssamtökunum með þeim hætti að stofnandi samtakanna hefur skrifað um veikinda- og bataferli sitt við geðröskunum. Fjalla þær um nálgun og úrvinnslu á geðrænu flækjustigi, með öðrum aðferðum en lyfjum, en ekki er verið að ýta undir að fólk taki ekki lyf eða hætti á lyfjum. Frásögnin segir til um að hægt sé að vinna með sjálfan sig og geðraskanir með margvíslegum aðferðum en hver verður að velja fyrir sig.

Starf Kærleikssamtakanna felst í að aðstoða einstaklinga sem eru félagslega einangraðir, búa við fátækt, eru heimilislausir og eiga langtíma óreglu- og/eða áfallasögu. Allir þessir þættir fela í sér breytingar og ójafnvægi á geðrænu ástandi. Einstaklingsbundið er hvernig einstaklingur nær að höndla áföll í barnæsku en allt of margir ná ekki fótfestu í lífinu vegna þeirra. Allur ágóði af bókunum rennur beint til Kærleikssamtakanna.

ATH - verið er að upppfæra vefsíðuna www.gedraskaniranlyfja.is en þar inni verður hægt að kaupa bækurnar - þar til er hægt að panta þær með því að smella á Hafa samband en einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið kls@kaerleiksamtokin.is.

♥     ♥     ♥

Hér er listi yfir bækurnar og útgáfur:

  1. Geðraskanir án lyfja                                                                  fáanleg í prentuðu formi, pdf, ePbuc, Kindle.
  2. Geðraskanir og sjálfsvinna                                                    fáanleg í prentuðu formi.
  3. Líf án geðraskana
  4. Líkamlegt ástand tengt geðröskunum
  5. Líkamlegt ástand tengt heilbrigði
  6. Orkutengd heilsa
  7. Andleg heilsa
  8. Upplýstir myrkraheimar
  9. Heilun
  10. Karma
  11. Jákvæðar og neikvæðar hliðar eiginleikanna
  12. Upplýstir ljósheimar
  13. Uppgjör karmatengsla
  14. ÉG MÁ
  15. Dagbók 1 frá 11.10.2018 til 3.4.2019
  16. Dagbók 2 frá 4.4.2019 til 3.11.2019
  17. Vitnisburðir, nám, dýpri sjálfsvinna, meðvirkni
  18. Hlutleysi
  19. Meðferðir
  20. Meðvirkni og Skuldbinding
  21. Fyrirgefning

UM HÖFUND BÓKANNA - sjá hér.

UM HLUTVERK BÓKANNA - sjá hér.

 ♥     ♥     ♥

VILLT ÞÚ STYRKJA STARF KÆRLEIMSSAMTAKANNA:

Ef þú villt styrkja starf og úrræði Kærleikssamtakanna þá er hægt að velja úr styrktarleiðum sem eru kynntar hér.

Fyrir fyrirspurnir er hægt að fylla út hafa samband eða senda tölvupóst á netfangið kls@kaerleikssamtokin.is.

♥     ♥     ♥

TILGANGUR FÉLAGSINS

Tilgangur og markmið félagsins er að gæta hagsmuna og reka félagsstarf fyrir einstaklinga sem eru félagslega einangraðir vegna fátæktar, heimilisleysis og áfalla,  með áherslu á jaðarsetta og viðkvæma hópa í þjóðfélaginu.

♥     ♥     ♥