Til að fagna því að Kærleikssamtökin eru að opna félagsheimili með virkni- og stuðningsúrræði til að rjúfa félagslega einangrun þá er þér boðið á opið hús nk. sunnudag, þann 8.11. klukkan 15.
Staðsetning Smiðjuvegur 10 í Kópavogi.
Dagskráin:
Kl. 15.15 Kynning á starfseminni.
Kl. 15.45 Hjörtur Magni Fríkirkjuprestur blessar húsnæðið.
Kl. 16.15-17 Myndlistaruppboðinu lýkur.
_________________________________
Félagsheimilið er til þess gert að einstaklingar sem eru félagslega einangraðir vegna fátæktar, heimilisleysis og/eða áfalla, geti komið á öruggan stað, fengið stuðning með sínar áskoranir dagslegs lífs og haft eitthvað fyrir stafni.
Reglulegir netfundir eru lykilatriði í virkni- og stuðningsúrræðinu til að rjúfa félagslega einangrun. Áherslan er að styðja einstaklinga til virkni þar sem þeir eru staddir hverju sinni, finna áhugamál, auka meðvitund á líðan sinni og byggja upp traust og trú á sjálfan sig.
Engihjalli 25
200 Kópavogur
s. 821-6174
kt. 561215-1030
kls@kaerleikssamtokin.is (almennt)
felagsstarf@kaerleikssamtokin.is (fyrir félagsmenn)
sjalfshjalp@sjalfshjalputgafa.is (fyrir Sjálfshjálp bókaútgáfu)
Athugasemdir