SLAGORÐ MANNRÉTTINDAFLOKKSINS
Ný Hugsjón – Ný Nálgun – Ný Útfærsla
Við lifum á tímum þar sem fjölmörg lög segja til um mannréttindi fólks - en samt er það svo að kerfin sem eiga að tryggja lagalega útfærslu - brjóta á fólki hvarvetna. Stjórnmálamenn gefa loforð sem þeir komast upp með að þurfa ekki að standa við auk þess sem margir þeirra taka eigin ákvarðanir þvert á vilja þjóðarinnar. Öll kerfin sem nú eru til staðar, menntakerfi, heilbrigðiskerfi, landbúnaðarkerfi, sjávarútvegskerfi, velferðarkerfi o.s.frv. - byggja öll á sama grunni sem er stjórnmálakerfið.
Stjórnmálakerfið er í grunninn þrælakerfi - og eins og við vitum var það viðurkennt kerfi fyrir ekki alls svo löngu.
Stjórnmálakerfið er ennþá það sama en almenningur hefur ekki áttað sig nægilega vel á að þegar viðurkennt þrælahald var lagt niður - þá tók kerfið á sig nýja mynd í skjóli nætur - í stað þess að þrælahaldsformið yrði lagt niður innan stjórnmálakerfisins.
Þá hafa einstaklingar sem sækjast eftir því að verða stjórnmálamenn mjög ólíkar sýnir og skilning á stjórnmálakerfinu sem og sjálfum sér. Þess vegna fara margir fram með göfugar hugsjónir og vilja landi og þjóð vel en falla svo í þá gryfju að aðlagast þrælahaldshugsun sem einkennist af valdahug, að hafa yfirráð og kúga. Sumir sem stíga inn í stjórnmál eru innrættir með þannig hug og þar liggur mesta hættan.
Ótti um að missa valdið eða valdastöðuna er í hættu þegar kosningar eru framundan. Þetta þekkist vel þegar einelti, andlegt/líkamlegt ofbeldi og áreitni á sér stað - en það er alveg eins þegar kemur að þrælahaldi - og þar sem leyfar af því eru enn til staðar í stjórnmálakerfum margra þjóða - þá er um að ræða ofbeldissamband af hálfu stórs hluta stjórnmálamanna gagnvart almenningi.
Finnst þér að það sé komin tími til að þessu linni?
♥ ♥ ♥
ÞÁTTTAKA Í MANNRÉTTINDAFLOKKNUM
Í samstarfi við einstaklinga viljum við byggja upp stjórnmálaflokk sem hugar að mannréttindum.
Í samstarfi við félagasamtök viljum við tryggja betri stuðning til félagasamtaka og aðkomu þeirra að mótun opinberra kerfa og mikilvægra ákvarðana er snerta þá hópa sem þau sinna.
Í samstarfi við stjórnmálaflokka sem vilja lýðræði byggt á mannréttindum viljum við tryggja betra upplýsingaflæði til almennings, meiri stöðugleika í landinu og lýðræði sem almenningur getur tekið þátt í að byggja upp.
♥ ♥ ♥
SKRÁNING Í MANNRÉTTINDAFLOKKINN
Við undirbúning á viðburði sem haldinn var 9.11. 2024 þar sem 20 ár voru frá stofnun Kærleikssamtakanna, þá kom skýr sýn (byrjaði 2017) um að næsta skref hjá þeim væri að stofna stjórnmálaflokk. Var hann kynntur á þessum viðburði, hér er hægt að sjá upptökuna, þ.e. kynning á starfi Kærleikssamtakanna, bókunum sem stofnandi þeirra hefur skrifað og svo stjórnmálaflokknum.
Hér getur þú skráð þig sem félagsmaður hjá Mannréttindaflokknum.
♥ ♥ ♥
STJÓRNARSTARF MANNRÉTTINDAFLOKKSINS
Hér er hægt að lesa nánar um stjórnarstarf flokksins.
Verið að vinna að sér vefsíðu.
Upplýsingar um nánara starf og framvindu Mannréttindaflokksins verða á þessari vefsíðu þar til.
♥ ♥ ♥
Engihjalli 25
200 Kópavogur
s. 821-6174
kt. 561215-1030
kls@kaerleikssamtokin.is (almennt)
felagsstarf@kaerleikssamtokin.is (fyrir félagsmenn)
sjalfshjalp@sjalfshjalputgafa.is (fyrir Sjálfshjálp bókaútgáfu)