Kærleikssamtökin orðin almannaheillafélag (fta)

Mikil vinna hefur farið í að uppfæra Kærleikssamtökin úr almennu félagaformi yfir í almannaheillafélag. Bæta þurfti við stjórn félagsins, velja trúnaðarmanna og varamanna hans, endurskoðendafyrirtæki og uppfæra samþykktir/lög félagsins.

Þessi breyting þýðir að félagið starfar nú samkvæmt lögum 110/2021. 

Næstu skref eru að halda áfram að undirbúa söfnunarátak og koma verkefum sem samtökin hafa staðið að á laggirnar. Erfiðlega hefur gengið að vinna alla vinnuma og mikil sjálfboðavinna sem hefur farið í allt sem hefur verið gert. Meira þarf þó til.

Kærleikssamtökin þakka allan þann stuðning sem þau hafa fengið í gegnum árin.

♥     ♥     ♥


Athugasemdir