Boðun til aðalfundar 2026.

Boðun til aðalfundar.

Ágæti félagsaðili.

Aðalfundur Kærleikssamtakanna almannaheillafélags (fta) verður haldinn miðvikudaginn 15. apríl nk. kl. 13:30 og er áætlað að honum ljúki eigi síðar en kl. 15:30.

Fundurinn verður haldinn á aðalbókasafni Kópavogs við Hamraborg á 3. hæð í sal sem heitir Holtið (staðsettur á miðjum ganginum).

Á dagskrá aðalfundarins eru venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt 10. gr. samþykkta félagsins og laga um félög til almannaheilla nr. 110/2021.

Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:

  1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
  2. Skýrsla stjórnar lögð fram til umræðu.
  3. Reikningar lagðir fram til umræðu og samþykktar.
  4. Lagabreytingar.
  5. Ákvörðun félagsgjalds.
  6. Kosning endurskoðanda, skoðunarmanna og/eða trúnaðarmanna.
  7. Önnur mál.

 

Framangreind dagskrá verður afgreidd í þeirri röð sem að ofan greinir.

Rétt til setu á aðalfundi hafa, samkvæmt 10. gr. samþykkta félagsins, þeir félagsmenn sem hafa greitt félagsgjald mánaðarlega síðastliðna 3 mánuði (febrúar, mars, apríl).

Rétt til atkvæðisgreiðslu á aðalfundi hafa, samkvæmt 11. gr. samþykkta félagsins, þeir félagsmenn sem hafa greitt félagsgjald mánaðarlega síðastliðna 6 mánuði (þ.e. nóvember, desember 2025 og janúar, febrúar, mars, apríl 2026).

Ekki er boðið upp á rafræna atkvæðisgreiðslu.

Skýrsla stjórnar og ársreikningur félagsins verða eftir fundinn sett á vefsíðu félagsins eins og lög um félög til almannaheilla gera ráð fyrir.

F.h. stjórnar,
Sigurlaug G. Ingólfsdóttir
Formaður Kærleikssamtakanna


Athugasemdir