Aðalfundur Kærleikssamtakanna

Á dagskrá aðalfundarins eru venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt 10. gr. samþykkta félagsins og laga um félög til almannaheilla nr. 110/2021. 

Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir: 

  1. Kosning fundarstjóra og fundarritara. 
  2. Skýrsla stjórnar lögð fram til umræðu. 
  3. Reikningar lagðir fram til umræðu og samþykktar. 
  4. Lagabreytingar. 
  5. Ákvörðun félagsgjalds. 
  6. Kosning stjórnar. 
  7. Kosning endurskoðanda, skoðunarmanna og/eða trúnaðarmanna. 
  8. Önnur mál. 

Framangreind dagskrá verður afgreidd í þeirri röð sem að ofan greinir. 

Rétt til setu á aðalfundi hafa, samkvæmt 10. gr. samþykkta félagsins, þeir félagsmenn sem hafa greitt félagsgjald mánaðarlega síðastliðna 3 mánuði (þ.e. apríl, maí, júní 2023).  

Rétt til atkvæðisgreiðslu á aðalfundi hafa, samkvæmt 11. gr. samþykkta félagsins, þeir félagsmenn sem hafa greitt félagsgjald mánaðarlega síðastliðna 6 mánuði (þ.e. janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní 2023). 

Ekki er boðið upp á rafræna atkvæðisgreiðslu. 

Skýrsla stjórnar verður send félagsmönnum með tölvupósti stuttu fyrir aðalfundinn. Félagar sem ekki eru með (skráð) netfang geta óskað eftir afriti af skýrslunni og sótt til formanns. 

Skýrsla stjórnar og ársreikningur félagsins verða eftir fundinn sett á vefsíðu félagsins eins og lög um félög til almannaheilla gera ráð fyrir. 

F.h. stjórnar, 
Sigurlaug G. Ingólfsdóttir 
Formaður Kærleikssamtakanna 


Athugasemdir