STYRKTARTLEIÐ 1
Með opnun félagsheimilis í október 2026 opnast fyrir Tækifæri til virkni fyrir félagsmenn.
Á félagsheimilinu er unnið út frá virkni- og stuðningsúrræði félagsins. Tilgangurinn er að styðja einstaklinga sem hafa verið félagslega einangraðir vegna fátæktar, heimilisleysis eða áfalla - til virkni. Með virkni er átt við að einstaklingur fari meira út úr húsi, hafi félagsskap í góðu umhverfi, finni sér áhugamál, hlúi að heilsu sinni, hreyfingu og mataræði til að auka lífsgæði sín á eigin forsendum.
Á félagsheimilinu eru deildir, s.s. saumadeild, tölvudeild, skrifstofudeild o.s.frv. Félagsmenn geta tekið þátt í að móta deildir. Áhugi félagsmanna til að taka þátt ræður ferðinni (hafa verður þó í huga að mögulega býður húsnæðið eða fjármagn ekki upp á hvað sem er).
Samhliða er ákveðin störf sem félagið þarf að sinna og falla þau inn í Tækifæri til virkni úrræðið og kallast þá sjálfboðaliðastörf. Um er að ræða störf sem skapast eftir því hvað er verið að takast á við hverju sinni innan félagsins á meðan sum störf eru alltaf til staðar, eins og t.d. ákveðin skrifstofustörf sem snúa að rekstri félagsins. Tilfallandi störf geta verið að undirbúa eða sinna ákveðnu verkefnit, t.d. árlegir tónleikar, myndlistasýning, styrktarsala o.s.frv.
Allar deildir og allt starf tengist ávallt tilgangi og markmiðum samtakanna sem er að aðstoða einstaklinga aftur út á við eftir að hafa verið félagslega einangraðir vegna fátæktar, heimilisleysis eða áfalla. Þá er nauðsynlegt og gott að geta komið inn í verndað umhverfi og mætt sjálfum sér þar sem maður er staddur og með þá getu og úthald sem hver hefur. Smátt og smátt eykst virknin og getan og jafnvel bætist við ný kunnátta, þekking eða áhugamál.
Ef þú villt komast út úr félagslegri einangrun yfir í félagsskap og virkni (eftir þinni getu), fylltu út formið hér og við höfum samband.
♥ ♥ ♥
Sjálfboðaliðar eru bæði félagsmenn sem taka að sér verkefni innan félagsins og utanaðkomandi aðilar sem leggja samtökunum lið með uppbyggilegum hætti, s.s. með fyrirlestrum, námskeiðum, meðferðum eða öðrum úrræðum. Kærleikssamtökin eru að leita að aðilum með þekkingu sem eru tilbúnir að miðla henni til félagsmanna innan félagsins og hjálpa þannig til við að aðstoða jaðarsetta og viðkvæma hópa út úr erfiðum aðstæðum. Með samstarfi tryggjum við breytingar til að fleiri einstaklingar geti lifað sæmandi lífi á Íslandi.
Við höfum svo mörg eitthvað farteski til að miðla. Á móti getum við alltaf lært eitthvað nýtt.
Ef þú hefur kunnáttu, þekkingu, tengsl og áhuga að hjálpa samtökunum og sjálfri/-um þér, fylltu út formið hér og við höfum samband.
♥ ♥ ♥
TILGANGUR FÉLAGSINS
Tilgangur og markmið félagsins er að gæta hagsmuna og reka félagsstarf fyrir einstaklinga sem eru félagslega einangraðir vegna fátæktar, heimilisleysis og áfalla, með áherslu á jaðarsetta og viðkvæma hópa í þjóðfélaginu.
♥ ♥ ♥
Engihjalli 25
200 Kópavogur
s. 821-6174
kt. 561215-1030
kls@kaerleikssamtokin.is (almennt)
felagsstarf@kaerleikssamtokin.is (fyrir félagsmenn)
sjalfshjalp@sjalfshjalputgafa.is (fyrir Sjálfshjálp bókaútgáfu)